Ólafur Ragnar Grímsson Í Rússlandi

Skapti Hallgrímsson

Ólafur Ragnar Grímsson Í Rússlandi

Kaupa Í körfu

Dagskrá forseta raskaðist í Rússlandi vegna óhapps í flugi Moskvu. Morgunblaðið. DAGSKRÁ fyrsta dags opinberrar heimsóknar Ólafs Ragnars Grímssonar forseta Íslands til Moskvu raskaðist verulega í gær vegna þess að flugvél SAS, sem forsetinn og fylgdarlið hans var í, var snúið til Kaupmannahafnar aftur fljótlega eftir flugtak í öryggisskyni. Ólafur Ragnar og fylgdarlið komu til Moskvu rúmum tveimur klukkustundum síðar en ráð var fyrir gert, fundi Halldórs Ásgrímssonar með German Gref viðskipta- og efnahagsráðherra var frestað en íslenski hópurinn fylgdist með óperusýningu í Bolshoi-leikhúsinu í gærkvöldi. MYNDATEXTI. Ólafur Ragnar Grímsson og Evgení Mazdratenkó sjávarútvegsráðherra kanna heiðursvörð rússneska hersins.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar