Akureyrarvöllur sleginn

Akureyrarvöllur sleginn

Kaupa Í körfu

Akureyrarliðin Þór og KA mætast í Símadeild karla í knattspyrnu í kvöld á Akureyrarvelli. Akureyrarliðin Þór og KA mætast í Símadeild karla í knattspyrnu í kvöld á Akureyrarvelli. KA-menn eru í toppbaráttu deildarinnar en Þórsarar neðstir, en þrátt fyrir það má reikna með því að hart verði barist og leikurinn spennandi eins og jafnan þegar félögin eigast við. Veður hefur verið gott í bænum síðustu daga og ljóst að verði gæði leiksins ekki mikil verður slæmum aðstæðum ekki um að kenna. Kristinn Geir Aðalsteinsson, starfsmaður Akureyrarvallar, og samstarfsmenn hans voru í óða önn að klæða völlinn í sparifötin þegar Morgunblaðið leit við síðari hluta gærdagsins - Kristinn ók sláttuvélinni í hringi þannig að völlurinn á að vera fallegur í kvöld. enginn myndatexti

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar