Átak í menntun á landsbyggðinni

Skapti Hallgrímsson

Átak í menntun á landsbyggðinni

Kaupa Í körfu

Uppbygging menntunar og menningar á landsbyggðinni SAMKOMULAG um átak í uppbyggingu menntunar og menningar á landsbyggðinni var undirritað í Háskólanum á Akureyri í gær af þeim Tómasi Inga Olrich menntamálaráðherra og Valgerði Sverrisdóttur iðnaðarráðherra. Munu ráðuneytin sameiginlega leggja að lágmarki 100 milljónir krón í þrjú ár eða samtals 300 milljónir í verkefni í ýmsum landshlutum Menntamálaráðherra gerði grein fyrir helstu verkefnum sem ráðist verður í en þau snúa að eflingu símenntunarmiðstöðva og uppbyggingu háskólanámssetra, starfsmenntun á landsbyggðinni, dreifmenntun í dreifbýli og menningu á landsbyggðinni. .. MYNDATEXTI: Menntamálaráðherra, Tómas Ingi Olrich, og iðnaðar- og viðskiptaráðherra, Valgerður Sverrisdóttir, kynna átak til að efla menntun og menningu á landsbyggðinni. Þorsteinn Gunnarsson, rektor HA, er á milli ráðherranna á myndinni. Blaðamannafundur í Háskólanum á Akureyri mánudagsmorguninn 24. febrúar. Menntamálaráðherra, Tómas Ingi Olrich og iðnaðar- og viðskiptaráðherra, Valgerður Sverrisdóttir, kynna átak til eflingar menntunar á landsbyggðinni. Þorsteinn Gunnarsson rektor HA er á milli ráðherranna á myndinni.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar