Sigrún Björg Aðalgeirsdóttir

Hafþór Hreiðarsson

Sigrún Björg Aðalgeirsdóttir

Kaupa Í körfu

HÉRAÐSMÓT HSÞ í frjálsum íþróttum, innanhúss, fór fram í Íþróttahöllinni á Húsavík fyrir skömmu. Þar tóku þátt um hundrað keppendur frá níu aðildarfélögum HSÞ og tókst mótið mjög vel í alla staði. Bestum árangri mótsins náði Sigrún Björg Aðalgeirsdóttir, Völsungi, er hún setti héraðsmet í 800 metra hlaupi í flokki 13 ára telpna. Sigrún Björg hljóp 800 metrana á 2.55,80 sekúndum og bætti þar með met Völu Drafnar Björnsdóttur um tæpar 5 sekúndur. MYNDATEXTI: Sigrún Björg Aðalgeirsdóttir, frjálsíþróttamaður Húsavíkur 16 ára og yngri árið 2002, náði bestum árangri á héraðsmóti HSÞ innanhúss í frjálsum íþróttum.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar