SR og SA

Jim Smart

SR og SA

Kaupa Í körfu

"LEIKURINN var besta skemmtun sem sést hefur í höllinni," sagði áhorfandi í Skautahöll Reykjavíkur eftir annan úrslitaleik Skautafélags Reykjavíkur og Skautafélags Akureyrar. Leiknum, sem var bráðskemmtilegur og hnífjafn, lauk með sigri SA en úrslitin réðust ekki fyrr en í vítakeppni. SA hefur því unnið tvo leiki og þarf því aðeins að vinna næsta leik til að standa uppi sem Íslandsmeistarar - í ellefta skipti á þrettán tímabilum. MYNDATEXTI. Kenneth Corp, lengst til hægri, gerði sigurmark SA í vítakeppninni í gær. Hér á hann í höggi við James Devine úr SR.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar