Mótmæli við alþingishúsið
Kaupa Í körfu
S.O.S. - hálendið kallar var yfirskrift hálendisgöngu og mótmæla gegn Kárahnjúkavirkjun sem fram fóru í miðborginni í gær. Að sögn skipuleggjenda tóku á milli 1.300 og 1.400 manns þátt í mótmælunum. Elísabet Jökulsdóttir, talsmaður skipuleggjenda, segir ýmsa grasrótarhópa hafa staðið fyrir mótmælunum. Gengið var með mótmælaspjöld niður Laugaveginn og safnaðist hópurinn svo saman á Austurvelli framan við Alþingishúsið. Þar frömdu leiklistarnemar gjörning þar sem fjallkonan var kefluð og vafin inn í ál, leikin var tónlist og ávörp flutt. Að því loknu mynduðu mótmælendur hring utan um Alþingishúsið og kölluðu upp slagorð á borð við "Það er ekki of seint" og "Svei þér, Siv." Siv Friðleifsdóttir umhverfisráðherra fylgdist hins vegar með út um glugga. ENGINN MYNDATEXTI.
Arnþór Birkisson
Skoða myndirÁrni Sæberg
Skoða myndirÁsdís Ásgeirsdóttir
Skoða myndirEggert Jóhannesson
Skoða myndirEmilía Björg Björnsdóttir
Skoða myndirGolli / Kjartan Þorbjörnsson
Skoða myndirJúlíus Sigurjónsson
Skoða myndirKristinn Ingvarsson
Skoða myndirKristinn Magnússon
Skoða myndirÓlafur K. Magnússon
Skoða myndirÓmar Óskarsson
Skoða myndirRax / Ragnar Axelsson
Skoða myndirHelgi Sigurðsson
Skoða myndirÍvar Valgarðsson
Skoða myndirKristinn Pálsson
Skoða myndir