Afganistan

Þorkell Þorkelsson

Afganistan

Kaupa Í körfu

Afganska þjóðin er nú að reisa land sitt úr rústum eftir langvarandi ófrið og afleiðingar jarðskjálfta. Ofan á það bættust miklir þurrkar. Alþjóðlegar hjálparstofnanir leggja lið við úrlausn óteljandi ................. Tilgangur farar Þorkels til Afganistans í desember síðastliðnum var að fylgjast með hjálpar- og uppbyggingarstarfi Rauða krossins og Rauða hálfmánans. Leiðin lá fyrst til Kabúl, höfuðborgar landsins. Þá var ekki nema tæpt ár liðið frá því Hamid Karzai sór embættiseið sem forsætisráðherra í nýrri bráðabirgðastjórn Afganistans. Var það í fyrsta sinn í marga áratugi sem valdaskipti fóru fram í landinu með friðsamlegum hætti. ...... Frá því bráðabirgðastjórnin tók við völdum 22. desember 2001 hafa mikil umskipti orðið í Afganistan MYNDATEXTI: Lífið í Norður-Afganistan er frumstætt að mörgu leyti. Þar má víða sjá stríðsminjar, yfirgefna bryndreka af öllu tagi og önnur stríðstól. Ógnvænlegustu stríðsminjarnar, jarðsprengjurnar, eru faldar í jörð og limlesta og drepa fjölda fólks þótt kominn sé friður. Þessir feðgar voru á leið inn í Nahrin með föggur sínar á tveimur ösnum.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar