Afganistan

Þorkell Þorkelsson

Afganistan

Kaupa Í körfu

Afganska þjóðin er nú að reisa land sitt úr rústum eftir langvarandi ófrið og afleiðingar jarðskjálfta. Ofan á það bættust miklir þurrkar. Alþjóðlegar hjálparstofnanir leggja lið við úrlausn óteljandi ................. Tilgangur farar Þorkels til Afganistans í desember síðastliðnum var að fylgjast með hjálpar- og uppbyggingarstarfi Rauða krossins og Rauða hálfmánans. Leiðin lá fyrst til Kabúl, höfuðborgar landsins. Þá var ekki nema tæpt ár liðið frá því Hamid Karzai sór embættiseið sem forsætisráðherra í nýrri bráðabirgðastjórn Afganistans. Var það í fyrsta sinn í marga áratugi sem valdaskipti fóru fram í landinu með friðsamlegum hætti. ...... Frá því bráðabirgðastjórnin tók við völdum 22. desember 2001 hafa mikil umskipti orðið í Afganistan MYNDATEXTI: Sígarettusalarnir Rames, 14 ára, og Hassin, 15 ára, buðu ljósmyndaranum tóbak og sælgæti til kaups. Aðvífandi hjólreiðamaður stoppaði til að fylgjast með viðskiptunum. Börn og unglingar, mörg munaðarlaus, reyna að afla sér tekna með ýmsum hætti, eins og sölu á götum úti eða jafnvel betli og sníkjum.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar