Þorrablót á Suðureyri

Halldór Sveinbjörnsson

Þorrablót á Suðureyri

Kaupa Í körfu

SANNIR Íslendingar borða súrmeti og baða sig í heitum laugum. Þar sem þorrinn er nýgenginn í garð er ekki úr vegi að slá þessu tvennu saman. Það er einmitt það sem hraustir menn af báðum kynjum gerðu á Suðureyri við Súgandafjörð á dögunum í tilefni af 10 ára afmæli laugarinnar þar. Menn létu samkvæmisklæðnaðinn ekki vanta fremur en vera ber á betri þorrablótum heldur skrýddust fjörlegum höfuðfötum og báru hálstau þrátt fyrir vætuna. Er ekki nokkur vafi á að súrmetið og harðfiskurinn hafi bragðast einstaklega vel í funheitri lauginni og frostköldum andvaranum. EKKI ANNAR TEXTI.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar