Víkingur - Stjarnan 18:20

Víkingur - Stjarnan 18:20

Kaupa Í körfu

Afleit byrjun Víkingsstúlkna varð þeim að falli þegar Stjarnan kom í heimsókn í Víkina í gærkvöld en Garðbæingar voru afar ákveðnir í að bæta fyrir tap gegn FH í síðustu viku. Hvorki gekk né rak hjá Víkingum til að byrja með sem kom niður á sjálfstraustinu og loks þegar Stjörnustúlkur slökuðu aðeins á klónni með góða forystu náðu heimasæturnar sér á strik en það var of seint. Myndatexti: Hind Hannesdóttir úr Stjörnunni brýst hér framhjá Víkingnum Steinunni Bjarnarson í leiknum í Víkinni í gærkvöldi en Guðbjörg Guðmannsdóttir fylgist grannt með framvindu mála hjá þeim.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar