Auðar byggingalóðir á Ísafirði

Halldór Sveinbjörnsson

Auðar byggingalóðir á Ísafirði

Kaupa Í körfu

BÆJARRÁÐ Ísafjarðarbæjar hefur samþykkt að láta auglýsa lausar til umsóknar nokkrar byggingarlóðir í grónum hverfum á Ísafirði. Lóðirnar eru m.a. við göturnar Seljaland og Múlaland í Seljalandshverfi, en það hverfi hefur til þessa verið skilgreint snjóflóðahættusvæði. Halldór Halldórsson, bæjarstjóri á Ísafirði, segir að forsenda þess að byggt verði á þessum lóðum í Seljalandshverfi sé að snjóflóðavarnargarður rísi í Seljalandsmúla fyrir ofan hverfið. MYNDATEXTI: Fyrirhuguð snjóflóðamannvirki eiga að koma í Seljalandshlíð fyrir ofan byggðina í Seljalandshverfi.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar