Lóð skoðuð fyrir byggingu við HA á Akureyri

Kristján Kristjánsson

Lóð skoðuð fyrir byggingu við HA á Akureyri

Kaupa Í körfu

Bygging rannsókna- og nýsköpunarhúss við HA boðin út að nýju HEIMAMENN á Akureyri ætla að taka slaginn og bjóða í byggingu rannsókna- og nýsköpunarhúss við Háskólann á Akureyri en hér um risavaxið verkefni að ræða. SS Byggir, Arkitekta- og verkfræðistofa Hauks og Fasteignir Akureyrarbæjar ætla að standa saman að tilboði, að sögn Sigurðar Sigurðssonar framkvæmdastjóra SS Byggis. Einnig munu þeir aðilar, sem buðu í verkið á síðasta ári, þ.e. Ístak og Nýsir annars vegar og Íslenskir aðalverktakar, ISS á Íslandi og Landsafl hins vegar, að bjóða aftur í verkið. MYNDATEXTI: Fulltrúar væntanlegra bjóðenda í byggingu rannsókna- og nýsköpunarhúss við Háskólann á Akureyri, fulltrúar í nefnd um verkefnið, fulltrúar HA og fulltrúi frá tækni- og umhverfissviði bæjarins hittust á fundi í HA í gær og skoðuðu lóðina undir væntanlega byggingu. Fulltrúar væntanlegra bjóðenda í byggingu rannsókna- og nýsköpunarhús við Háskólann á Akureyri, fullrúar í nefnd um verkefnið, fulltrúar HA og fulltrúi frá tækni- og umhverfissviði bæjarins hittust á fundi í HA í gær og skoðuðu lóðina undir væntanlega byggingu.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar