Sýður á Scout

Sýður á Scout

Kaupa Í körfu

Ferðaklúbburinn 4x4 efndi síðastliðinn laugardag til jeppaferðar en tilefnið var 20 ára afmæli klúbbsins. Um þrjár leiðir var að velja, Skjaldbreið, Hellisheiði og Reykjanes. Í upphafi var safnast saman við nokkur bílaumboð á höfuðborgarsvæðinu og var Árni Sæberg með í för upp á Skjaldbreið. Voru það um 200 öflugir jeppar á stórum dekkjum sem fóru ferðina upp á Skjaldbreið, en aðrir jeppar fóru léttari leiðir. MYNDATEXTI: Það sauð á Scout jeppa Ragnars Kristinssonar í einni brekkunni. Scoutinn er nýkominn á götuna eftir 10 ára geymslu í bómull og verið ná úr honum barnaveikinni eftir svona langa geymslu. (Það sauð á Scout jeppa Ragnars Kristinssonar í einni brekkunni. Scoutinn er nýkominn á göruna eftir 10 ára geymslu í bómull og verið að ná úr honum barnaveikinni eftir svona langa geymslu).

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar