Haukar - Tindastóll 91:89

Haukar - Tindastóll 91:89

Kaupa Í körfu

ÞRIGGJA stiga karfa frá Predrag Bojovic á lokasekúndunni tryggði Haukum sigur á Tindastóli, 91:89, í æsispennandi leik - þegar liðin léku fyrsta leikinn í 8-liða úrslitum um Íslandsmeistaratitilinn í körfuknattleik í gærkvöldi að Ásvöllum í Hafnarfirði. Haukar áttu lengst af á brattann að sækja gegn baráttuglöðum leikmönnum Tindastóls en með harðfylgi tókst Hafnarfjarðarliðinu að knýja fram sigur og það hefur þar með tekið forystu í einvígi liðanna. MYNDATEXTI: Clifton Cook skorar fyrir Tindastól en það dugði ekki til því Predrag Bojovic tryggði Haukum sigur á síðustu stundu. Hér reynir Bojovic, til vinstri, að stöðva Cook án árangurs.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar