Fýkur yfir Tröllafjall

Rax / Ragnar Axelsson
Fleiri myndir eftir ljósmyndara »

Fýkur yfir Tröllafjall

Kaupa Í körfu

ÞUNGBÚINN bergbúi gægist út úr þessu tröllafjalli í nágrenni Reyðarfjarðar. Snjóinn skóf af tindum líkt og bergbúanum væri heitt í hamsi, en þvert á móti var kuldaboli að angra hann. Kannski hefur titringur í jörð vegna sprenginga við Kárahnjúka vakið hann af værum svefni en í öllu falli fylgist hann með mannlífinu í firðinum og lítur trúlega á það með velþóknun.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar