Njarðvík - KR 97:95

Njarðvík - KR 97:95

Kaupa Í körfu

FLUGELDASÝNING Herberts Arnarsonar dugði KR-ingum ekki til sigurs gegn Njarðvík á laugardaginn þegar liðin mættust öðru sinni í 8-liða úrslitum. Slakur fyrri hálfleikur varð þeim að falli því Njarðvíkingar sýndu þá gamlar sparihliðar og áttu auk þess varabirgðir af orku fyrir lokasprettinn sem var nóg til að vinna 97:95 eftir dramatískar og spennuþrungnar lokamínútur. Njarðvíkingar eru því komnir í undanúrslit og bíða eftir oddalotu Grindvíkinga og Hamars. MYNDATEXTI: Teitur Örlygsson hefur sett sterkan svip á leik Njarðvíkurliðsins eftir að hann byrjaði að leika á ný með liðinu. Hér er hann með knöttinn á ferðinni að körfu KR-inga, án þess að Ingvaldur M. Hafstein nái að stöðva hann.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar