Trinket

Sverrir Vilhelmsson

Trinket

Kaupa Í körfu

Unnið er að viðgerð á mjölflutningaskipinu Trinket í þurrkví Orms og Víglundar í Hafnarfjarðarhöfn en það var nærri strandað þegar það missti stýri á siglingu frá Grindavík fyrir um mánuði síðan. Eiríkur Ormur Víglundsson hjá Vélsmiðju Orms og Víglundar segir að Trinket hafi reynst mikið skemmt, bæði stýrisbúnaður, skrúfa, öxull og eins hafi botn skipsins reynst vera mikið skemmdur.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar