Vetrarblóm í Bjarnarflagi

Birkir Fanndal Haraldsson

Vetrarblóm í Bjarnarflagi

Kaupa Í körfu

NÚ þegar skammt er til jafndægra á vori verður ekki betur séð en allur kraftur sé úr kuldabola. Það er rétt svo að hann nái að skreyta grösin frá síðasta sumri dag og dag á milli þess sem sunnanþeyrinn rekur hann af landi brott. Snjór sést varla nema hátt til fjalla og ísinn á Mývatni er þannig að varla nokkur maður treystir honum til umferðar. Þessi vetrarblóm eru í Bjarnarflagi en Kísiliðjan í baksýn og gufustrókur upp af henni. Þar á bæ er notuð mikil jarðgufa og raforka sem hvortveggja verður til í Bjarnarflagi. Menn binda vonir við það hér um slóðir að aukin umsvif verði brátt á þessum stað í formi nýrrar starfsemi hjá Kísiliðjunni og Baðfélagi Mývetninga. allur textinn

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar