Jón Ragnar Ólafsson

Sigurður Jónsson

Jón Ragnar Ólafsson

Kaupa Í körfu

Verslunarrútur frá Eyrarbakka, Stokkseyri og Þorlákshöfn. FJÓRTÁN íbúar Eyrarbakka og Stokkseyrar nýttu sér tilboð Krónunnar síðastliðinn fimmtudag um rútuferð frá þorpunum við ströndina, á Selfoss til að versla í Krónunni. Bónus fylgdi í kjölfarið og bauð upp á rútuferð í gær, föstudag, og þáði einn íbúi það tilboð. Þeir sem nýttu sér aksturstilboðið voru eldra fólk sem kvaðst ekki hafa yfir bíl að ráða og leist vel á það að eiga þess kost að komast í verslanir sem bjóða lægra verð. "Ég mun örugglega koma aftur, þetta er gott þótt ekki sé nema til að hreyfa sig," sagði Guðrún Júlía Elíasdóttir, 86 ára, frá Stokkseyri þar sem hún skoðaði í hillurnar í Krónunni. Myndatexti: Jón Ragnar Ólafsson, bifreiðarstjóri hjá Guðmundi Tyrfingssyni, bíður eftir viðskiptavini Bónuss.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar