Fimleikar í Laugardalshöll

Fimleikar í Laugardalshöll

Kaupa Í körfu

SIF Pálsdóttir úr Gróttu sigraði í fjölþraut fjórða árið í röð þegar Íslandsmótið í áhaldafimleikum fór fram í Laugardalshöll um helgina og bætti um betur með þrjú gull af fjórum þegar keppt var á einstökum áhöldum á sunnudeginum./Viktor Kristmannsson úr Gerplu sigraði í fjölþraut karla og þrátt fyrir meiðsl á úlnlið sýndi hann mikla keppnishörku með því að vinna tvö gull á einstökum áhöldum og þrjú silfur. Spennan var því mest í hópfimleikum þar sem stúlkur í fimleikafélaginu Björk höfðu nauman sigur. MYNDATEXTI: Viktor Kristmannsson vann gull fyrir æfingar í hringjum.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar