Leikskólinn Krílakot

Alfons Finnsson

Leikskólinn Krílakot

Kaupa Í körfu

ÞAÐ var fríður hópur leikskólabarna frá Krílakoti sem gekk um götur Ólafsvíkur ásamt starfsfólki leikskólans. Það er líka gott fyrir börnin að komast aðeins út af leikskólanum og kynnast því hvernig lífið er utan hans, og hefur starfsfólk Krílakots verið duglegt við að kynna börnunum hvað framtíðinn beri í skaut sér. Ferðinni var heitið í bankastofnanir í bænum þar sem börnin sungu fyrir starfsfólk. Vakti þessi uppákoma barnanna verðskuldaða athygli starfsfólks og viðskiptavina. Að launum fengu börnin svala og annað heilnæmt góðgæti, sem þau þáðu með þökkum. allur textinn

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar