Aðalfundur SPRON - Jón G. Tómasson

Jim Smart

Aðalfundur SPRON - Jón G. Tómasson

Kaupa Í körfu

Ný stjórn SPRON kosin á aðalfundi í gærkvöldi Listi Péturs fékk tvo menn kjörna NÝSTOFNUÐ Samtök stofnfjáreigenda Sparisjóðs Reykjavíkur og nágrennis, SPRON, fengu tvo menn kjörna í stjórn SPRON á aðalfundi í gærkvöld. Pétur Blöndal veitir listanum forystu en annað sætið skipar Hildur Njarðvík. Listinn fékk 5.908 atkvæði en listi stjórnar 6.444 atkvæði og þrjá menn kjörna, Jón G. Tómasson formann, Hildi Petersen og Árna Þór Sigurðsson. Þetta er í fyrsta sinn í 70 ára sögu SPRON sem tveir listar eru í framboði til stjórnar. MYNDATEXTI: Jón G. Tómasson

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar