Lansliðið - Eiður Smári Guðjohnsen

Lansliðið - Eiður Smári Guðjohnsen

Kaupa Í körfu

ÍSLENSKA landsliðið í knattspyrnu kom til Glasgow í gær og hóf þar með undirbúning sinn fyrir Evrópuleikinn gegn Skotum á Hampden Park á laugardaginn. Þar eiga Íslendingar harma að hefna eftir ósigurinn gegn Skotum, 2:0, í fyrri leik þjóðanna á Laugardalsvellinum í haust. Þetta er þriðji leikur Íslands í undankeppni EM en eftir áðurnefnt tap vann íslenska liðið góðan sigur á Litháum, 3:0, og er því með þrjú stig eftir tvo fyrstu leikina. MYNDATEXTI: Skoskir fjölmiðlamenn umkringdu Eið Smára Guðjohnsen, leikmann Chelsea, þegar hann kom úr flughöfninni í Glasgow í gær. (Skoska pressan sækir að Eiði Smára)

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar