Njarðvík - Keflavík 97:101

Jim Smart

Njarðvík - Keflavík 97:101

Kaupa Í körfu

DÚETT Damons Johnsons og Edmunds Saunders reyndist Njarðvíkingum of stór biti til að kyngja þegar Keflvíkingar sóttu þá heim í öðrum leik liðanna í úrslitakeppni Íslandsmótsins í körfuknattleik.Barátta heimamanna var þó snöggtum skárri en í fyrsta leik liðanna en þeir félagar skoruðu saman tvo þriðju hluta stiganna og tóku sama hlutfall frákastanna auk þess að hlaða villum á Njarðvíkinga, sem lentu fyrir vikið of snemma í villuvandræðum og töpuðu 101:97. MYNDATEXTI: Njarðvíkingurinn Ólafur A. Ingvason á fullri ferð en Guðjón Skúlason er til varnar.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar