Grindavík - Tindastóll körfubolti karla

Golli / Kjartan Þorbjörnsson
Fleiri myndir eftir ljósmyndara »

Grindavík - Tindastóll körfubolti karla

Kaupa Í körfu

GRINDVÍKINGAR hafa nú unnið tvo leiki á móti einum í einvíginu við Tindastól um að komast í úrslit Íslandsmótsins eftir að þeir unnu 92:77 í Grindavík í gærkvöldi. Eftir jafnan fyrri hálfleik tóku heimamenn við sér með Helga Jónas Guðfinnsson og Darrell Lewis í broddi fylkingar ásamt Guðmundi Bragasyni í fráköstunum án þess að gestunum tækist að breyta neinu þar um. Næsta viðureign verður því á heimavelli Stólanna, sem unnu þar síðast. MYNDATEXTI: Helgi Jónas Guðfinnsson fór mikinn í liði Grindavíkur í gær og er hér kominn framhjá Óla Barðdal.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar