Keflavík - Njarðvík 105:80

Sverrir Vilhelmsson

Keflavík - Njarðvík 105:80

Kaupa Í körfu

FYRSTU tólf mínúturnar leit út fyrir að Njarðvíkingar væru á góðri leið með að knýja fram fjórða leikinn við Keflavík í undanúrslitum úrslitakeppninnar þegar liðin mættust í þriðja sinn í Keflavík í gærkvöldi. Þá skoraði Guðjón Skúlason tvær þriggja stiga körfur sem dugðu til að snúa taflinu við og það var neistinn sem kveikti í Keflvíkingum. Þeir rönkuðu rækilega við sér, hertu á vörninni og spiluðu ótrauðir til 105:80-sigurs en það var þeirra þriðji í röð. MYNDATEXTI: Edmund Saunders hefur leikið vel með Keflvíkingum.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar