Vinir að leik í snjónum

Rax / Ragnar Axelsson
Fleiri myndir eftir ljósmyndara »

Vinir að leik í snjónum

Kaupa Í körfu

ÞAÐ má varla á milli sjá hvort skemmti sér betur, Embla Eir Kristinsdóttir eða fjórfættur félagi hennar, Grettir, þegar skyndilega gerði snjódrífu af himnum ofan þar sem þau voru að leika sér saman á róló. Reyndar var seppi svo ákafur að hann einokaði rennibrautina um stund þannig að vinkona hans komst lítið sem ekkert að. Hann fékk hins vegar að lokum fyrir ferðina í orðsins fyllstu merkingu þegar hann steyptist á trýnið ofan í snjóinn með þeim afleiðingum að hann haltraði um í nokkurn tíma og þorði eftir það ekki fyrir sitt litla líf að fara fleiri salíbunur. Embla litla fékk því næg tækifæri til að spreyta sig í brautinni atarna með öllu betri árangri en Grettir vinur hennar.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar