Framsókn

Steinunn Ásmundsdóttir

Framsókn

Kaupa Í körfu

"FRAMSÓKNARFLOKKURINN stendur á traustum grunni og feykist ekki til og frá í sviptivindum dagsins. Kjósendur okkar vita fyrir hvað við stöndum og geta treyst orðum okkar," sagði Dagný Jónsdóttir, þriðji maður á lista Framsóknarflokksins í Norðausturkjördæmi. Þetta kom fram á stjórnmálafundi Framsóknarflokksins á Egilsstöðum í fyrrakvöld, þar sem Dagný, Valgerður Sverrisdóttir, iðnaðar- og viðskiptaráðherra, og Jón Kristjánsson heilbrigðisráðherra fluttu framsögur og sátu fyrir svörum. Rúmlega 40 manns sóttu fundinn. MYNDATEXTI: Frambjóðendur Framsóknarflokksins í Norðausturkjördæmi héldu opinn stjórnmálafund á Egilsstöðum í fyrrakvöld. F.v. Valgerður Sverrisdóttir iðnaðar- og viðskiptaráðherra, Katrín Ásgrímsdóttir fundarstjóri og í ræðustól Jón Kristjánsson heilbrigðisráðherra.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar