Landsfundur Sjálfstæðisflokks

Landsfundur Sjálfstæðisflokks

Kaupa Í körfu

Stemmningin er eins og að fara á landsleik. Það sópast fólk úr öllum áttum að Höllinni, öll bílastæði eru yfirfull og umferðarhnútur við Suðurlandsbrautina. Ef til vill er stóri munurinn sá að fólk er ekki beint með hnút í maganum af spenningi, meira fiðring. Það eru aftur á móti fjölmargir með bindishnút. Svo virðist sem bindi séu komin aftur í tísku. Margir eru í sínu fínasta pússi og stór dagur runninn upp í lífi hvers sjálfstæðismanns. Landsfundur er að hefjast.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar