Valdís Ásgeirsdóttir

Alfons Finnsson

Valdís Ásgeirsdóttir

Kaupa Í körfu

VALDÍS Ásgeirsdóttir náði þeim merka áfanga að fá skipstjórnarréttindi hjá Siglingaskóla Íslands á síðasta ári. Hún hefur farið nokkra róðra síðan sem skipstjóri á Garpi SH og verið fengsæl eins og sjá má. Valdís sækir sjóinn stíft og rær á net ásamt föður sínum, Ásgeiri Valdimarssyni, og Guðmundi Gústafssyni. Fyrir helgina var Valdís að landa og ganga frá afla dagsins sem var um 2,5 tonn af fallegum þorski sem fékkst í Grundarfirði.Valdís er greinilega ánægð með sína vinnu á sjónum og er ekkert á því að hætta að stunda sjómennskuna í bili.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar