Austurstræti 22

Austurstræti 22

Kaupa Í körfu

HÚSIÐ var byggt árið 1801 af Ísleifi Einarssyni sem þá hafði verið skipaður yfirdómari í nýstofnuðum Landsyfirrétti. Talið er að þetta hús sé það fyrsta sem byggt var við Austurstræti. Það er byggt úr furustokkum og er líklega af bolhúsagerð. Ráðamönnum í konungsgarði þótti svo vel hafa tekist með bygginguna að Ísleifi voru veitt peningaverðlaun. Undirstöður hússins voru hlaðnar úr holtagrjóti og grunnflötur hússins 11x21 álnir og sneri lengri hliðin að Austurstræti. Sex gluggar voru á þeirri hlið og voru aðaldyr hússins á miðri hliðinni. Aðalstofan var í norðvesturhorninu, inn af henni var herbergi. Í norðausturhorninu var herbergi sem notað MYNDATEXTI: Austurstræti 22. Þetta er glæsilegt hús enn í dag, en það var byggt 1801. Árið 2000 var húsið allt tekið í gegn.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar