Paolo Turchi.sem vann 5 milljónir

Jim Smart

Paolo Turchi.sem vann 5 milljónir

Kaupa Í körfu

Það vakti athygli á sunnudagskvöld þegar Ítalinn Paolo Turchi gerði sér lítið fyrir og vann sér inn fimm milljónir króna í þættinum "Viltu vinna milljón?" sem sýndur er á Stöð 2. Paolo svaraði öllum 15 spurningum stjórnandans, Þorsteins J. Vilhjálmssonar, hárrétt og varð þar með annar þátttakandinn í þættinum til að vinna sér inn fimm milljónir króna. Í gær var efnt til fagnaðarhófs á ítalska veitingastaðnum Galileo til að samgleðjast Paolo og fjölskyldu hans. Hér er það Heimir Jónasson, dagskrárstjóri Stöðvar 2, sem afhendir Paolo vinninginn góða við sama tækifæri.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar