Grindavík -Tindastóll 109:77

Grindavík -Tindastóll 109:77

Kaupa Í körfu

Grindvíkingar, með Darryl Lewis í broddi fylkingar, fóru létt með að tryggja sér sæti í úrslitum úrvalsdeildar karla í körfuknattleik í Grindavík í gær. Lewis lék sinn besta leik á tímabilinu, skoraði 45 stig, og Grindvíkingar unnu stórsigur á Tindastóli, 109:77, í fimmta og síðasta undanúrslitaleik liðanna. Myndatexti: Friðrik Ingi Rúnarsson, þjálfari Grindvíkinga, gefur hér lærisveinum sínum góð ráð í leikhléinu í Grindavík í gærkvöld. Grindavík vann stórsigur á Tindastóli og mætir Keflavík í úrslitaeinvígi.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar