Eivør Pálsdóttir og hljómsveit í Kaffileikhúsinu

Sverrir Vilhelmsson

Eivør Pálsdóttir og hljómsveit í Kaffileikhúsinu

Kaupa Í körfu

Hugmyndirnar hlaðast upp. Í kvöld og á morgun mun færeyska söngkonan og lagasmiðurinn Eivør Pálsdóttir syngja og leika ásamt hljómsveit sinni í Kaffileikhúsinu. Eivør hefur verið búsett hérlendis um skeið og setti saman bandið síðasta haust. Í því eru engir aukvisar en þar fara þeir Eðvarð Lárusson gítarleikari, Birgir Bragason bassaleikari og Pétur Grétarsson slagverksleikari. Fereykið hefur verið að vinna nýtt efni að undanförnu og verður það framreitt fyrsta sinni í Kaffileikhúsinu næstu kvöld. Myndatexti: Eivør og félagar í syngjandi sveiflu. Frá vinstri. Birgir Bragason kontarbassi, Eivör Pálsdóttir, Pétur Grétarsson trommur og Eðvarð Lárusson gítar

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar