Sjávarútvegsráðherra í Melaskóla

Halldór Kolbeins

Sjávarútvegsráðherra í Melaskóla

Kaupa Í körfu

ÞAU Oddur Jarl Haraldsson, Nikola Óskar Kojic og Elena Arngrímsdóttir, sem öll eru nemendur í Melaskóla, tóku hraustlega til matar síns í hádeginu í gær enda ekki á hverjum degi sem þau hafa Árna Mathiesen sjávarútvegsráðherra sem borðherra. Ekki spillti fyrir að íslenskt sjávarfang var á boðstólum, matreitt á íslenska vísu í formi plokkfisks, og auðvitað var almennilegt rúgbrauð með. Melaskóli bauð ráðherra og aðstoðarmanni hans, Ármanni Kr. Ólafssyni, í plokkfisksmáltíð í hádeginu í gær en vinstra megin við ráðherra situr Ragna Ólafsdóttir skólastjóri.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar