Austurbrún 31 félag alzheimerssjúkra

Jim Smart

Austurbrún 31 félag alzheimerssjúkra

Kaupa Í körfu

Samkaup - verslunarkeðja færði Félagi aðstandenda alzheimer-sjúklinga nýlega styrk að upphæð kr. 500.000 til reksturs félagsins. Styrkurinn var afhentur á stjórnarfundi félagsins 1. apríl sl. Félagið mun verja styrknum til að auka tengsl og efla starfsemina um allt land, segir í fréttatilkynningu. Á myndinni afhendir Skúli Skúlason frá Samkaupum Maríu Th. Jónsdóttur, formanni samtaka alzheimersjúklinga, gjöfina. Með þeim á myndinni eru f.v. Guðríður Ottadóttir, Jóhanna Ólafsdóttir, Margrét Gísladóttir og Haukur Helgason, framkvæmdastjóri samtakanna.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar