Grettir í Slippstöðinni í Stykkishólmi

Gunnlaugur Árnason

Grettir í Slippstöðinni í Stykkishólmi

Kaupa Í körfu

Þrír bátar í slippnum Stykkishólmi-Hjá Skipavík hf. í Stykkishólmi starfa um 50 manns og er fyrirtækið með stærri atvinnurekendum í bænum. Það er með fölbreytta starfsemi, dráttarbraut og skipaviðgerðir og svo byggingastarfsemi. Að sögn Sævars Harðarsonar framkvæmdastjóra er mikið að gera hjá Skipavík um þessar mundir og verkefnastaða góð fyrir næstu mánuði. MYNDATEXTI: Það er mikið um að vera hjá slippdeild Skipavíkur í Stykkishólmi. Í slipp er Grettir SH 104 sem er eitt stærsta skip sem tekið hefur verið upp í dráttarbrautinni. Skipið fór í slipp vegna skemmda á skrúfublöðum.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar