Geysishúsið - Ingólfsnaust

Halldór Kolbeins

Geysishúsið - Ingólfsnaust

Kaupa Í körfu

Höfuðborgarstofa flytur starfsemi sína í Aðalstræti 2 INGÓLFSNAUST verður opnað í miðborginni í dag. Flestir þekkja bygginguna sjálfsagt betur sem Geysishúsið en í dag, þegar Höfuðborgarstofa og Upplýsingamiðstöð ferðamála taka þar til starfa eftir gagngerar endurbætur á húsinu, fær það nýtt nafn sem dregið er af sögu sem rekja má allt aftur til landnáms. "Hér í Aðalstræti 2 var áður naust Reykjavíkurbóndans, allt aftur til daga Ingólfs Arnarsonar og þetta svæði var kallað Ingólfsnaust í gömlum heimildum," útskýrir Svanhildur Konráðsdóttir, forstöðumaður Höfuðborgarstofu. MYNDATEXTI: Upplýsingamiðstöð ferðamála dregur til sín um 120 þúsund heimsóknir ferðamanna á ári en Svanhildur leggur áherslu á að hún sé ekki síður hugsuð fyrir Íslendinga sem hyggja á ferðalög innanlands.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar