Jón Bogason

Jón Bogason

Kaupa Í körfu

JÓN Bogason er einn af athyglisverðustu náttúrufræðingum hér á landi. Hann er þó ekki lærður í háskóla heldur hefur hann aflað sér víðtækrar þekkingar sinnar af bókum og með eigin rannsóknum. Jón vann mestan hluta ævi sinnar sem sjómaður og sem rannsóknarmaður hjá Hafrannsóknastofnun, en er nú kominn á eftirlaun. Hann situr þó ekki auðum höndum heldur er hann með litla vinnustofu heima hjá sér þar sem hann situr daglangt við smásjána og greinir örlítil sjávardýr sem hann svo teiknar upp af mikilli nákvæmni. Jón er afar yfirlætislaus maður og lítið fyrir að tjá sig á opinberum vettvangi en féllst að lokum á að segja blaðamanni undan og ofan af ævi sinni og störfum. MYNDATEXTI: Ég ætlaði mér alltaf að verða sjómaður, áhuginn beindist frá fyrstu tíð að sjónum," segir Jón Bogason. "Mér kom aldrei til hugar að ég hefði svo miklar gáfur að mér hentaði langskólanám."

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar