Bílvelta við Álftaver

Jónas Erlendsson

Bílvelta við Álftaver

Kaupa Í körfu

ÖKUMAÐUR slasaðist og var fluttur í sjúkrabíl til Reykjavíkur eftir bílveltu á Suðurlandsvegi við Álftaver í gær. Maðurinn sat fastur í bílnum og þurfti að fá tækjabíl slökkviliðsins til að klippa þakið af til að hægt væri að ná honum út. Lögreglan í Vík í Mýrdal segir að maðurinn hafi verið á austurleið og misst stjórn á bílnum með þeim afleiðingum að hann valt í vegkantinum. Maðurinn var ekki talinn alvarlega slasaður. EKKI ANNAR TEXTI. (Til fréttastjóra og á netið Myndir teknar í dag austur á Mýrdalssandi þar sem bíll valt og þurfti að fá tækjabíl slökkuliðsins í Vík til að klippa ökumannin út úr bílhræinu. Kveðja Jónas Erlendsson )

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar