Friðveig Elísabet Rósarsdóttir fékk nýtt sjónvarpstæki.

Friðveig Elísabet Rósarsdóttir fékk nýtt sjónvarpstæki.

Kaupa Í körfu

Friðveig Elísabet Rósarsdóttir, sem missti allt innbú sitt þegar eldur kviknaði í íbúð hennar út frá sjónvarpstæki í byrjun marsmánaðar, fékk nýlega nýtt sjónvarpstæki, með innbyggðu slökkvitæki, að gjöf frá H. Blöndal. Friðveig er tveggja barna móðir sem leigir af Félagsbústöðum og er barnsfaðir hennar nýstiginn upp úr hjartaáfalli. Friðveig hefur í meira en mánuð búið í einu herbergi á gistiheimili með börnin sín tvö, en barnsfaðir hennar býr á gistiheimili Rauða krossins fyrir veikt fólk. Myndatexti: Esther Helga Guðmundsdóttir (t.h.) afhenti Friðveigu sjónvarpið.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar