Stjarnan - Haukar 16: 24

Stjarnan - Haukar 16: 24

Kaupa Í körfu

HAUKASTÚLKUR sendu Stjörnuna í snemmbúið sumarfrí í öðrum leik liðanna í undanúrslitum 1. deildar kvenna í handknattleik á laugardag, þegar liðin mættust í Ásgarði í Garðabæ. Líkt og í fyrri leik liðanna þurftu Haukar ekki að hafa mikið fyrir sigrinum, mótstaða Stjörnunnar var mjög takmörkuð og eftir aðeins 10 mínútna leik var spurningin aðeins hve stór sigur Haukanna yrði. Átta mörk skildu liðin að þegar upp var staðið, Haukar skoruðu 24 mörk gegn 16 mörkum Stjörnunnar. Myndatexti: Erna Halldórsdóttir, Nína Björnsdóttir, Harpa Melsted og Inga F. Tryggvadóttir, leikmenn Hauka.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar