Þorsteinn Ingvarsson
Kaupa Í körfu
ÁRSÞING HSÞ, það nítugasta í röðinni, var haldið í sal stéttarfélaganna á Húsavík fyrir skömmu. Fulltrúar sextán aðildarfélaga áttu rétt til setu á þinginu og var góð mæting frá flestum félögum. Meðal gesta þingsins voru þeir Björn B. Við þetta tækifæri voru íþróttamenn ársins 2002 hjá HSÞ kynntir og þeim afhent verðlaun. Tilnefndir voru Jón Smári Eyþórsson glímumaður ársins úr Baldursheimi í Mývatnssveit. Knattspyrnumaður ársins Pálmi Rafn Pálmason, Völsungi, sundmaður ársins kom einnig úr Völsungi, Björgvin Már Vigfússon og frjálsíþróttamaður ársins var Þorsteinn Ingvarsson, Ungmennafélaginu Einingu í Bárðardal. Íþróttamaður HSÞ var kjörinn Pálmi Rafn Pálmason, hann hefur leikið með Völsungi undanfarin ár og vakið verðskuldaða athygli. Hann þykir einn af efnilegustu knattspyrnumönnum landsins og hefur verið undir smásjá erlendra liða, m.a Groningen í Hollandi og Arsenal. Pálmi Rafn hefur eins og kunnugt er skipt yfir í KA á Akureyri og spilar með liðinu í úrvalsdeildinni í sumar. Þeir Pálmi Rafn og Jón Smári voru báðir fjarverandi við keppni í íþróttagreinum sínum og gátu því ekki sjálfir tekið við verðlaunum sínum. MYNDATEXTI: Þorsteinn Ingvarsson
Arnþór Birkisson
Skoða myndirÁrni Sæberg
Skoða myndirÁsdís Ásgeirsdóttir
Skoða myndirEggert Jóhannesson
Skoða myndirEmilía Björg Björnsdóttir
Skoða myndirGolli / Kjartan Þorbjörnsson
Skoða myndirJúlíus Sigurjónsson
Skoða myndirKristinn Ingvarsson
Skoða myndirKristinn Magnússon
Skoða myndirÓlafur K. Magnússon
Skoða myndirÓmar Óskarsson
Skoða myndirRax / Ragnar Axelsson
Skoða myndirHelgi Sigurðsson
Skoða myndirÍvar Valgarðsson
Skoða myndirKristinn Pálsson
Skoða myndir