Intercoiffure

(C) MOTIV-MYND, Jón Svavarsson

Intercoiffure

Kaupa Í körfu

NORÐURLANDAÞING heimssamtaka hárgreiðslumeistara (Intercoiffure) var haldið í Reykjavík fyrir skemmstu og lauk með hárgreiðslusýningu á Broadway. Guðbjörn Sævar, sem flestir kannast við sem Dúdda, situr í Íslandsdeild Intercoiffure ásamt fjórtán öðrum og höfðu þau allan veg og vanda af undirbúningi þingsins. Dúddi var svolítið þreyttur eftir þessa miklu törn en líka sæll og glaður, því allt tókst þetta með miklum ágætum. "Þingið stóð í heila viku og hingað komu um 200 manns frá 16 þjóðlöndum, m.a. Japan og Ástralíu. Yfirstjórn Intercoiffure var svo ánægð með hvernig til tókst hjá fámennri Íslandsdeildinni að þeir ákváðu að bjóða okkur til Parísar í haust til að heiðra deildina sérstaklega." MYNDATEXTI: ELSA" Frá Salon Veh kom Elsa Haraldsdóttir með einkasýningu og fór öruggum höndum um hár stúlkunnar. Intercoiffure, hárgreiðslusýning Broadway.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar