Daníel Jónsson fiskar í soðið

Alfons Finnsson- Ólafsvík

Daníel Jónsson fiskar í soðið

Kaupa Í körfu

DANÍEL Jónsson var einn þeirra sem reru til fiskjar frá Ólafsvík síðasta vetrardag en hann fiskar sér eingöngu í soðið nú orðið. Báturinn sem Daníel rær á er aðeins 1 tonn að stærð og er hann smíðaður í Hafnarfirði árið 1969. Þetta er eini báturinn af þessari gerð sem enn er til á landinu en þegar Daníel byrjaði til sjós 12 ára gamall átti hann sams konar bát. Hann hefur notað veturinn til að gera bátinn upp og er ánægður með útkomuna Leiðrétting 20030426: Rær frá Ólafsvík Ranghermi var í myndatexta á blaðsíðu 2 í blaðinu á fimmtudag. Daníel Jónsson rær frá Ólafsvík en ekki Ólafsfirði eins og stóð. Beðist er velvirðingar á þessum mistökum. (breytti í texta)

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar