Samningur KFR og 11-11

Anna Ólafsdóttir Fréttaritari Hellu

Samningur KFR og 11-11

Kaupa Í körfu

UNDIRRITAÐUR hefur verið samningur milli Knattspyrnufélags Rangæinga og Kaupáss hf. fyrir hönd 11-11-verslana. Í honum felst m.a. að 11-11-verslanir styrkja knattspyrnufélagið með fjárframlagi á hverju ári í þrjú ár til búningakaupa auk þess að bera kostnað af gerð auglýsingaskiltis á íþróttavöll og gerð auglýsingar á bak æfingabúninga félagsins. Búningarnir verða teknir í notkun í sumar. MYNDATEXTI: Verslunarstjórarnir Drífa Nikulásdóttir og Sólveig Ottósdóttir ásamt Björgvini Guðmundssyni, varaformanni KFR, við undirritun samnings milli Knattspyrnufélags Rangæinga og 11-11-verslana. Fyrir aftan þau standa Björgvin Daníelsson, stjórnarmaður í KFR, Viktor Steingrímsson, einn af stofnendum félagsins, og Þorbergur Albertsson, stjórnarmaður í KFR.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar