Haukar - KA 33:27

Sverrir Vilhelmsson

Haukar - KA 33:27

Kaupa Í körfu

DEILDARMEISTARAR Hauka tóku forystuna í einvíginu við Íslandsmeistara KA í undanúrslitum Íslandsmóts karla í handknattleik á Ásvöllum í gærkvöld. KA-menn voru sterkari í fyrri hálfleik en í síðari hálfleik tóku Haukarnir öll völd á vellinum og unnu öruggan sex marka sigur, 33:27, og fara því með gott veganesti til Akureyrar á sunnudaginn þegar liðin eigast við öðru sinni. MYNDATEXTI: Aron Kristjánsson reynir skot að marki KA-manna en Arnór Atlason er til varnar.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar