Vinstri grænir fagna sumri

Sverrir Vilhelmsson

Vinstri grænir fagna sumri

Kaupa Í körfu

Frambjóðendur flokkanna fögnuðu sumri víða um borg FRAMBJÓÐENDUR stjórnmálaflokkanna fögnuðu vorinu með ýmsum hætti í gær á fyrsta degi sumars./Vinstri hreyfingin - grænt framboð var hins vegar á því að brenna hitaeiningum í stað þess að bæta á þær og skellti sér í Nauthólsvík þar sem eldri og yngri frambjóðendur flokksins nýttu ylströndina til keppni í blaki sín á milli. Báru ungliðarnir sigur úr býtum en stuttu seinna náði lið öldunganna að svara fyrir sig í reiptogi. MYNDATEXTI: Ungliðar og "öldungar" Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs spöruðu sig hvergi í æsispennandi blakkeppni á ylströndinni í Nauthólsvík. (Sumarhátíð Nauthólsvík)

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar