Pupperty of the Penis

(C) MOTIV-MYND, Jón Svavarsson

Pupperty of the Penis

Kaupa Í körfu

ÞAÐ er mikill heiður að fá að fjalla um þessa sýningu í fjölmiðli þar sem helst má ekki minnast á hráefnið sem hér er notað í skúlptúra réttu nafni, hvað þá birta af því mynd. En þá er bara að skrifa smekklega í kringum hlutina. T.d. mætti nefna að japanska orðið "origami", sem notað er í undirheiti sýningarinnar, er skv. ensk-íslenskri orðabók listgrein sem felst í því að brjóta saman pappír á ýmsa vegu þannig að úr verði alls kyns skrautmunir. Aðstandendur þessarar sýningar nota aftur á móti engan pappír til þessara hluta og leiðréttist hér með leiður misskilningur í þessa veru í Fréttablaðinu nýverið. MYNDATEXTI: Leikhúslimirnir David Friend og Simon Bradley fullklæddir með Sigurstein Halldórsson á milli sín.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar