Blíða fyrir trillukarla

Alfons Finnsson

Blíða fyrir trillukarla

Kaupa Í körfu

EINMUNA blíða hefur verið síðustu daga fyrir trillukarla sem róa frá Snæfellsnesi. Fjöldi báta rær með handfæri, bæði aðkomumenn sem hafa fjölmennt og svo heimabátar. Aflabrögð hafa verið með ágætum frá því að bátarnir máttu hefja veiðar aftur eftir páska. Á myndinni má sjá hvar Birgir Tryggvason fylgist stoltur með afa sínum og nafna, Birgi Vilhjálmssyni, hampa tveimur vænum þorskum, stutt frá Ólafsvík, en þeir róa á handfærabátnum Sigga Brands SH.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar